Jahá, hvar skal byrja?
Best að ég hafi þetta bara í skeytafréttastíl fyrst það er svo langt síðan ég skrifaði og frá ýmsu að segja.
Í gær fengum við nýjan borgarstjóra hér í Columbia - og í morgun lenti hann í bílslysi á leiðinni í viðtal.
Húsið sem við leigjum á að fara á sölu og við þurfum því að finna okkur nýtt leiguhúsnæði fyrir 1. ágúst eða 1.sept. Spurning hvort maður noti nú bara ekki gestina í byrjun ágúst til að flytja

Þórir er að fara í lokaprófið sitt núna á föstudaginn - allir að krossa fingur fyrir hann þá
Ísland er að sjálfsögðu í öllum fréttatímum hér, meira að segja í local sjónvarpinu og þeir sem maður þekkir halda náttulega að fjölskyldur okkar og allir hinir Íslendingarnir séu í útrýmingarhættu! Svona eru áhrifin af æsifréttamennsku og náttulega skal tekið tillit til þess að á þessu svæði þekkir fólk þetta ekki neitt og því kanski eðlilegt að það hafi þessar áhyggjur - krúttlegt bara
Þórir týndi giftingarhringnum sínum í síðustu viku en það er í fjórða sinn sem það gerist! Spurning hvaða merkingu "Fullkomnað í fjórða" merki í þessu samhengi! Ég fór nú bara að hlæja en krökkunum fannst þetta hið alvalegasta mál í fyrstu en róuðu sig svo þegar við útskýrðum að þetta væri nú ekki í fyrsta sinn og svo væri maður alveg jafn harð-giftur sama hvort það væri hringur eða ekki
Síðasta föstudag var "Spring Fling"(nokkurs konar vorhátíð) í skólanum hjá Eyþóri Ás og ég og börnin skelltum okkur þangað en Þórir var að vinna. Krökkunum fannst geggjað gaman og þið getið kíkt á nýjasta myndaalbúmið hér á blogginu til að sjá myndir.
Á sunnudaginn fórum við fjölskyldan svo í State Park í klukkustundar akstursfjarlægð til að komast í garð þar sem væri vatn sem mætti synda í! Við höfðum reyndar komið þar einu sinni áður en nú vorum við græjuð fyrir sundsprett og skelltum okkur út í kalt vatnið og fannst þetta bara svolítð skemmtilegt (myndir af þessu í sama myndaalbúmi). Við verðum náttulega að æfa okkur að synda í vatni ef við ætlum að halda áfram að taka þátt í þríþrautarkeppnum hér þar sem yfirleitt er synt í vatni eða sjó.
Ég klára þessa önnina í næstu viku og er þá komin í sumarfrí. Ekki er þó ákveðið hvenær ég kem heim, hvort það verður með börnunum 8.júní eða eitthvað fyrr ef að eitthvað er að gera fyrir mig á Sólvöllum í maí. Auðvitað dauðlangar mig heim sem fyrst að hitta alla en finnst samt ekki alveg sanngjarnt að fara heim til að gera ekki neitt og skilja börn og mann eftir hér í margar vikur. Þetta hlýtur þó að skýrast á næstu dögum.
Jæja, best að hunskast til að læra smá. Er búin að finna mér allt annað að gera heldur en að byrja á þessum pappír sem ég á að skila á mánudaginn!!!!!!!!!!!!!!!!!!